Haustið 2022 ákvað Rótarý klúbburinn Reykjavík Landvættir að athuga með að láta útbúa merki klúbbsins. Það vantaði t.d. að láta gera borðfána líkt og flestir klúbbar eiga. Rétt að eiga líka undirskrift með merki klúbbsins. Leitað var til Harðar Lárussonar hjá Kolofon sem brást vel við erindinu enda hafði faðir hans verið félagi í Rótarý. Útkoman varð þetta fallega merki sem endurómar hvorutveggja Rótarýhreyfinguna og Landvættina. Hörður hafði orð á því að þetta væri verkefni sem honum líkaði að vinna að þar sem það hefði snert hann allt það góða starf Rótarý sem hann kynnist í gegnum föður sinn þar sem allt snerist um að láta gott af sér leiða.