Vin dagsetur fær góða gjöf

miðvikudagur, 10. desember 2025

Þann 24. nóvember fór Rótarýklúbburinn Reykjavík Landvættir í heimsókn í Vin Dagsetur með góða gjöf sem var vel tekið. Gjöfin eru ýmis tól og tæki til úrskurðar að verðmæti um 100 þúsund krónur. Góðgerðanefnd klúbbsins stóð fyrir söfnunninni og félagar klúbbsins greiddu aukagjald til að safna fyrir þessar gjöf til Vinjar. Áður hefur klúbburinn safnað fyrir saumavél sem Vin var fært og sem hefur komið í góðar notir.Á hverjum mánudegi koma margir gestir Vinjar saman og tálga áhugaverða hluti og skera út og fá til þess leiðsögn. Þar sem ekki eru sterk fjárráð hjá Vin kom gjöf rótarýklúbbsins sér einstaklega vel. Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir; helsta hlutverk Vinjar að draga úr félagslegri einangrun og skapa vinalegt umhverfi fyrir gesti setursins. Yfir hundrað einstaklingar heimsækja Vin reglulega. Þar er lögð áhersla á fræðslu- og batamiðuð verkefni til að efla virkni gesta, með tilliti til þarfa og áhuga hvers og eins. Þar er meðal annars starfrækt ferðafélagið Víðsýn og Vinaskákfélag. Þar er einnig listasmiðja, haldnir fundir og margt fleira. Vin er starfrækt við Hverfisgötu í Reykjavík.Við vonumst til að útskurðarverkfærin komi að góðum notum ogmunum halda áfram að styðja við það góða starf sem fer fram hjá Vin.

Góðgerðanefnd Rótarýklúbbsins Landvættir færir Bryndísi Christensen starfskonu Vinjar gjöfina. Með er Sigulaug M. Jónasdóttir.

Forseti klúbbsins G Pétur Matthíasson ásamt Bryndísi Christensen með gjöfina góðu.

Skjólstæðingar Vinjar tálga saman. Góð samvera og ljúf stemning við borðið.

Albert Ingason húsgagnasmiður, leiðbeinandi við útskurð.

Fjölbreytt og fallegt, útskorið í Vin.